Persónuverndarstefna Orðalist

Síðast uppfært: júní 2026

Um okkur

Vefsíða okkar er https://ordalist.is. Orðalist er rekið af Hulda Security ehf. (kt. 570325-0190). Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á ordalist@ordalist.is.

Hvaða gögn við söfnum og af hverju

Pantanir í netverslun

Við söfnum upplýsingum þegar þú verslar hjá okkur. Þetta felur í sér:

  • Nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer (til að vinna úr pöntun og afhenda vöru).
  • Greiðsluupplýsingar (vinnsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt. Þegar kredit-/debetkort eru notuð er vinnsla framkvæmd í gegnum Teya og Stripe greiðslumiðlun. Við geymum ekki kortaupplýsingar sjálf).
  • Nöfn og orð sem þú slærð inn í hönnunina (til að búa til og prenta vöruna). Slíkar upplýsingar geta varðað aðra einstaklinga, og með því að nota þjónustuna staðfestir þú að þú hafir heimild til að nota þær.
  • IP-tölu, vafra og staðsetningu (til að áætla sendingu og skatta, og til öryggis).
  • Upplýsingar um körfu og skoðaðar vörur (til að viðhalda pöntunarfærslu og bæta þjónustu).

Cookies (vafrakökur)

Við notum vafrakökur til að muna innihald körfunnar, auðkenna innskráða notendur og tryggja virkni síðunnar. Þú getur stjórnað vafrakökum í stillingum vafrans.

Til viðbótar notum við nafnlausa tölfræði (Vercel Analytics) sem safnar ekki persónugreinanlegum upplýsingum og krefst ekki samþykkis.

Við notum einnig markaðskökur frá Facebook (Meta Pixel) vegna auglýsinga. Þær eru aðeins virkjaðar með samþykki þínu og senda gögn til Meta. Þú getur breytt eða afturkallað samþykki hvenær sem er með því að smella á „Vafrakökur“ neðst á síðunni.

Hverjir hafa aðgang að gögnum

Starfsfólk Orðalist (stjórnendur vefs) hefur aðgang að pöntunargögnum og viðskiptaupplýsingum til að vinna úr pöntunum, afgreiða sendingar og afgreiða endurgreiðslur.

Hverjum við deilum gögnum með

  • Greiðslugátt: Greiðslur eru unnar í gegnum Teya og Stripe. Þau fá aðgang að þeim gögnum sem nauðsynleg eru til greiðsluúrvinnslu (t.d. nafn, kortaupplýsingar, pöntunarfjárhæð).
  • Sendifyrirtæki: Við miðlum nafni, heimilisfangi, símanúmeri og pöntunargögnum til Dropp til að sjá um afhendingu. Sjá https://dropp.is/personuvernd.
  • Prentun: Hönnunarefni vörunnar er sent til Pixel prentþjónustu til prentunar.
  • Tölvupóstur: Pöntunarstaðfestingar eru sendar í gegnum Resend.
  • Hýsing og þjónustuaðilar: Vefurinn er hýstur hjá Vercel og gögn eru geymd hjá Supabase, sem vinna gögn í okkar umboði samkvæmt vinnslusamningi.
  • Markaðssetning: Meta (Facebook Pixel), aðeins með samþykki þínu.

Hve lengi gögn eru geymd

Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er:

  • Pöntunargögn eru geymd í minnst 7 ár í samræmi við íslensk bókhaldslög.
  • Notendareikningar (ef skráðir) geyma persónuupplýsingar þar til notandi óskar eftir eyðingu.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að:

  • Fá aðgang að þeim gögnum sem við höfum um þig.
  • Fá leiðrétt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.
  • Óska eftir eyðingu gagna sem ekki eru lengur nauðsynleg.
  • Mótmæla vinnslu gagna sem byggir á samþykki (t.d. markaðssetning).
  • Láta færa gögn til annars þjónustuaðila.
  • Vera í sambandi við Persónuvernd ef þú telur brotið á réttindum þínum.

Hvar gögn eru unnin

Gögn eru að jafnaði hýst á öruggum netþjónum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Í sumum tilvikum geta þjónustuaðilar sem við nýtum, svo sem Meta, Stripe og Vercel, unnið gögn utan EES. Slíkt fer fram í samræmi við persónuverndarlöggjöf og með viðeigandi verndarráðstöfunum, m.a. staðlaðar samningsákvæði (SCC) samþykktar af Evrópusambandinu.

Hafa samband

Ef þú hefur spurningar eða vilt nýta rétt þinn samkvæmt persónuverndarlögum, vinsamlegast hafðu samband við okkur:

Orðalist (Hulda Security ehf.)
Lundur 22, 200 Kópavogur
Netfang: ordalist@ordalist.is